Mannamál: vigdís endursýnd í kvöld

Í tilefni af því að 35 ára eru liðin frá sögulegu kjöri Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta Íslands í þessari viku endursýnir Hringbraut margrómaða viðtalsþætti við Vigdísi sem frumsýndir voru á fyrstu útsendingardögum Hringbrautar í febrúar í vetur.

Óhætt er að segja að viðtal Sigmundar Ernis við Vigdísi í þætti hans Mannamáli hafi vakið þjóðarathygli á sínum tíma, en í tveimur 30 mínútna þáttum sem sýndir voru 18. og 25. febrúar ræddi Vigdís um uppeldisár sín, skólaár, leikhúsárin, skilnaðinn við eiginmanninn, kjaftasögurnar, forsetaframboðið, forsetatíðina og árin eftir veruna á Bessastöðum. Eftir því var tekið hvað Vigdís var persónuleg og opinská í viðtalinu.

Fyrstu þættirnir af Mannamáli síðasta vetur verða endursýndir nú í sumar og verður fyrri hluti viðtalsins við Vigdísi sýndur á ný í kvöld og seinnihlutinn á miðvikudaginn í næstu viku.