Mannamál: sagnaþulurinn egill ólafs

Listamaðurinn fjölhæfi, Egill Ólafsson fer á kostum í viðtalsþættinum Mannamál á sjónvarpsstöðinni Hringbraut annaðkvöld, en þar fer sagnameistarinn á skeið svo um munar.

Samtal þeirra Sigmundar Ernis er hispurslaust og skemmtilegt í meira lagi, en lýsingar Egils úr æsku sinni eru ekki einasta dásamlegar heldur og ekki síður þær hinar meiri þegar kappinn var orðinn kunnur á sviði.

Frægust er þar Norðfjarðarsagan sem tekur dágóðan part úr þættinum, en að sögn Sigmundar Ernis hefur lengri saga ekki verið sögð af meira listfengi í þáttum hans sem eru þó orðnir æði margir á 30 ára sjónvarpsferli.

Þá er heldur ekki ónýtt að fylgjast með Agli rifja það upp þegar hann fann músíkina koma til sín á barnsaldri, en þar brestur hann í söng eins og honum er einum lagið - og vekur nokkra athygli að það var Harry Belafonte sem kom honum ungum á bragðið.

Sagnameistarinn sest andspænis Sigmundi Erni í Mannamáli klukkan 20:30 annaðkvöld. Þar mun engum leiðast.