Sverrir í mannamáli: íslam breytti mér

Sverrir Ibrahim Agnarsson, fyrsti músliminn á Íslandi var gestur Sigmundar Ernis í þættinum Mannmál á Hringbraut í gærkvöld og fór yfir vægast sagt ævintýralegt lífshlaup sitt.

Þáttinn má nú sjá hér á vef stöðvarinnar, en þar kemur fram að Sverrir snerist snemma til íslamstrúar; uppljómun sína fékk hann eftir nokkurra ára veru á Spáni á hippaárunum upp úr 1970. Þar sammæltust nokkur ungmenni að hittast nokkru síðar í Istandbúl og leggja Asíu að fótum sér, en þangað kominn var Sverrir ekki alveg viss um hvort hann hafði verið að dreyma allt saman eða ekki, altént mætti hann einn á staðinn - og sveik ekki eigið loforð; næstu misserin fór hann um Afganistan, Pakistan og Indland, enda leitandi mjög frá því hann var fermdur til kristinnar trúar, en þar kom að því að hann hitti alþýðufólk í sveitunum í þessum Austurlöndum sem smám saman hreif hann svo mjög með sér að honum fannst hann fara um loftin blá á töfrateppi.

Saga Sverris er með eindæmum og slíkur sagnamaður er hann að hver sem hlýðir á hlýtur að hrífast með, hvort heldur er af sögum hans úr sveitinni hér heima eða sveitunum - sambærilegum - austur í álfum, ellegar þegar hann var að leiða saman Bubba og Ómar í fyrstu boxútsendingunum í kæliklefanum fyrir tölvur á Sýn þar sem þeir fóru vægast sagt mikinn í algerlega óviðjafnanlegum lýsingum sínum, kappklæddir báðir, annar uppi á borði eins og kjúklingur, en hinn nagandi borðbrúnina, slíkt var innlifunin í kaldasta verelsi sjónvarpsstöðvarinnar.

Mannamál eru fendursýnd á Hringbraut í dag og um helgina.