Fyrsti gestur nýrrar þáttaraðar af Mannamálum sem frumsýndur var í gærkvöld var söngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir, einn dáðasti og ástsælasti listamaður þjóðarinnar, en Diddú stendur á sextugu og efnir til afmælistónleika í Hörpu nú í september.
Diddú hefur lifað merkilega ævi eins og hún lýsti svo vel í einkar persónulegu samtali sínu við Sigmund Erni í þættinum í gærkvöld. Hægt er að nálgast hann að hluta eða í heild inni á hringbraut.is, en hann er einnig í endursýningu á sjónvarpsstöðinni í dag.
Í þættinum ræddi hún uppeldi sitt þar sem söngur og hljóðfærasláttur var alltumlykjandi, samband sitt og bróðurins Páls Óskar sem hún sá frá fyrsta degi að yrði mikill listamaður, heyrnartapið sem byrjaði strax á unga aldri, en Diddú er alveg heyrnarlaus á öðru eyranu og hefur tekist að lifa og syngja með því sakir meðfæddrar glaðværðar og jákvæðni - og svo varði hún góðum tíma í að tala um Spilverksárin og hvernig hópurinn fór að því að semja jafn mörg lög sem lifa með þjóðinni og raun ber vitni.
Hún deildi með áhorfendum sínum galdrinum að lifa af klassíska tónlistarlífið hér heima, leik sínum í kvikmyndum og sjónvarpsmyndum og merkilegum kynnum sínum af Halldóri Kiljan Laxness sem hafi verið feiminn maður.
\"Ég vissi vel að Diddú væri merkilega stór manneskja,\" segir þáttastjórnandinn Sigmundur Ernir \"en guð minn almáttugur hvað það var gaman að eiga þetta samtal við þessa heillandi konu sem Diddú er,\" bætir hann við.
Þátturinn Mannamál er sem fyrr segir í heild sinni inni á hringbraut.is.