Máni glímir við gæsarfjall í 20 klukkustundir samfleytt og safnar áheitum fyrir barnaspítala - er efstur í áheitasöfnuninni!

Máni Hrafnsson freistar þess nú að hlaupa í 20 klukkustundir samfleytt á tind Grouse Mountain í Kanada og niður aftur, og safna þannig áheitum í þágu barnaspítalans í Vancouver í Kanada. Hlaupið, Multi Grouse Grind Challenge, er árlegur viðburður og mikil þolraun en á fyrstu fjórum og hálfu tímunum hafði Máni náð fimm sinnum á toppinn og aftur til baka.

Grouse Mountain, eða Gæsarfjall, er 1200 metra hátt, og því ekki fyrir byrjendur að hlaupa á tindinn og niður aftur, samfleytt í tuttugu klukkustundir.

Máni hefur safnað meiri áheitum en nokkur annar keppandi í þessu ofurhlaupi, og nálgast óðflugum 3000 kanadíska dollara. Allir geta heitið á Mána, með því að smella hér, og renna öll framlög óskipt til barnaspítalans.

Máni, sem er 35 ára, hefur annan fótinn í Vancouver enda giftur konu úr borginni, Joey Chan. Þau hafa m.a. farið á vegum Hróksins og Kalak til að halda hátíðir á Grænlandi, og í febrúar héldu þau upp á Valentínusardaginn í alræmdasta hverfi Vancouver. Þá útdeildu þau og vinir þeirra miklu magni af fatnaði til bágstaddra og buðu auk þess upp á kakó og góðgæti.

Þá hefur Máni farið iðulega á vegum Hróksins í heimsóknir á Barnaspítala Hringsins í Reykjavík til að tefla við börnin og stytta þeim stundir.

Hrafn Jökulsson, faðir hlaupagarpsins, fylgist grannt með syni sínum, en hlaupinu lýkur klukkan 7 í fyrramálið að íslenskum tíma og hvetur alla, sem eru í aðstöðu til eftir efnum og ástæðum, til heita á Mána. Hrafn skrifar á Facebook:

„Í þessum rituðu orðum svífur Máni Hrafnsson einsog vindurinn, upp og niður hið 1200 metra Gæsafjall í Vancouver og safnar áheitum í þágu barnaspítalans þar í borg. Gaman að segja frá því að Máni er efstur hlaupagarpanna í áheitum og nálgast óðflugum 3000 dollara, sem allir fara rakleitt í þágu þessa góða málstaðar. Hlaupið stendur í 20 klukkutíma(!) og hægt er að heita á Mána uns hlaupinu lýkur klukkan 7 í fyrramálið. Sáraeinfalt mál, upphæðir aukaatriði, þótt við stefnum auðvitað á öruggan íslenskan sigur.“

Elísabet Ronaldsdóttir, móðir Mána, fylgist ekki síður spennt með, og á Facebook hvetur hún alla sem vettlingi valda til að heita á Mána, og styðja þannig við barnaspítalann.

Þegar þetta er skrifað hefur Máni safnað áheitum að upphæð 2860 kanadískum dollurum.