Máni: frosti þóttist vera presturinn

Stóra prestsmálið eins og það hefur verið kallað í dag er upplýst. Enginn fyrrverandi prestur hjá þjóðkirkjunni hringdi í Harmageddon til að lýsa þeim létti sem fylgdi því að færast úr guðstrúnni yfir til Siðmenntar heldur brá Frosti Logason sér í gervi vígðs manns í símatíma og hringdi í félaga sinn Mána á Harmageddon. Var því viðtali útvarpað án þess að aðrar upplýsingar kæmu fram um manninn en þær að Frosti kynnti sig sem fyrrum sóknarprest.

Hringbraut birti fyrr í dag frétt undir fyrirsögninni: Siðmennt afneitar dularfullum presti, þar sem leitað var upplýsinga frá Siðmennt hvort þeir væru búnir að ráða til sín athafnastjóra, fyrrum sóknarprest hjá Þjóðkirkjunni, sem hefði gengið af trúnni og annaðist nú hjónavígslur og greftrarnir í veraldlegum og borgaralegum anda. Spurt var á grunni þess að í símaviðtalinu sem útvarpað var á Harmageddon kom fram hjá „prestinum“ að hann væri nú kominn yfir til Siðmenntar og líkaði umskiptin vel.

Siðmennt taldi um grín að ræða og kannaðist ekki við sendinguna frá þjóðkirkjunni.

Í framhaldi af því leitaði Hringbraut svara hjá Mána Péturssyni, öðrum umsjónarmanna Harmageddon, sem tók á móti símtalinu í þættinum þegar „presturinn“ trúlausi hringdi. Máni upplýsir að félagi hans Frosti hafi hringt inn og þóst fyrrverandi sóknarprestur. Í viðtalinu var þeim létti m.a. lýst að þurfa ekki lengur að ljúga í börnin um ruglið í biblíunni, Jesú, Maríu mey og það alt.

Hringbraut hefur rætt við tvo presta og er öðrum þeirra ekki skemmt og boðar viðbrögð frá þjóðkirkjunni.

„Við erum náttúrlega alltaf umdeildir,“ segir Máni.

Fyrir skemmstu sagði Máni sig úr þjóðirkjunni vegna óánægju. Félagi hans Frosti hefur heldur ekki farið í grafgötur með skoðanir sínar og gagnýni á þjóðkirkjuna.

„Þetta var náttúrlega samfélagsleg ádeila og gert í gríni. Samt með þeim tilgangi að fá fólk til að hugsa,“ segir Máni og vísar til þess að áður hafi þeir félagar brugðið með svipuðum hætti svona á leik, þá í kvótaumræðu.