Páll Magnússon alþingismaður lýsir spilltu andrúmslofti og baktali í nánu samfélagi Vestmannaeyja í pistli sem birtist á vefnum Eyjar.net í dag. Hann segir að stöðuna megi t.d. rekja til hitamála í Eyjum á borð við yfirtöku bæjarins á starfsemi Herjólfs og hvetur Eyjamenn til að sýna hver öðrum virðingu.
Sjá einnig: Telur bæjarstjóra svívirða saklausan mann sem eitt sinn taldist svarinn andstæðingur hans
Páll, sem er uppalinn í Vestmannaeyjum og þingmaður Suðurkjördæmis, segir í pistli sínum að það hafi verið sérstök forréttindi að alast upp í svo litlu og nánu samfélagi. Hann segir þó eina skuggahlið á þessari nálægð, nefnilega hversu persónuleg ágreiningsmál milli bæjarbúa eiga það til að verða.
„Við eigum oft afar erfitt með að leysa úr ágreiningsmálum án þess að gera þau persónuleg. Og með því að ágreiningurinn verður fremur persónulegur en málefnalegur þá verður hann líka illvígari og langvinnari en ella. Mér finnst því miður að þetta hafi gengið úr nokkru hófi hjá okkur síðustu misserin.“