Winnie Mandela, fyrrum eiginkona Nelson Mandela og ein mesta baráttukona fyrir frelsi svartra í landinu er látin 81 árs og er minnst víða um heim.
Winnie helgaði líf sitt baráttunni gegn aðskilnaðarstefnunni í landinu og fyrir réttindum svartra. Hún tók við kyndlinum í þeirri baráttu þegar Nelson Mandela var dæmdur í lífstíðarfangelsi og barðist frá þeim degi fyrir frelsun hans og við að halda minningu hans á lofti. Hún var gift Nelson Mandela í 38 ár, en 27 af þeim sat Nelson í fangelsi, varð frjáls árið 1990 en sex árum síðar skildu þau. Winnie var átján árum yngri en Nelson Mandela og stuttu eftir giftingu var hann
Sjálf var hún margoft handtekin og fangelsuð og seint á áttunda áratugnum þoldi hún heils árs fangelsun og pyntingar.
Hún varð síðar þingmaður og ráðherra og sat enn á þingi þegar hún lést eftir langvinn veikindi.
Hún varð umdeild síðar fyrir meintar grófar baráttuaðferðir og dæmd fyrir aðild að láti ungs blökkumanns sem hafði verið rænt og myrtur. Hin síðari ár naut Winnie þó virðingar og aukinnar velvildar og varð táknmynd um allan heim fyrir baráttunni gegn valdi hvíta minnihlutans í Suður Afríku.
Hennar er minnst sem frelsisleiðtoga og sem hinnar miklu og óhagganlegu baráttukonu fyrir réttindum svartra í Suður Afríku. Stuðningsmenn hennar nefndu hana móður þjóðarinnar eða Mother of the Nation og gekk hún undir nafninu „Mama Winnie.“