Á þingfundi í gær var rætt um þriðja orkupakkann. Í annað skipti á innan við viku gripu þingmenn Miðflokksins til málþófs og lauk þingfundi klukkan 5:42 í morgun. Í síðustu viku stóð þingfundur til 6:18 þegar þingmenn Miðflokksins einokuðu sömuleiðis umræðu um orkupakkann. Miðflokkurinn er sem kunnugt er alfarið á móti innleiðingu þriðja orkupakkans.
Eyjan.DV.is greinir frá.
Miðflokkurinn deildi þessari mynd á Facebook skömmu eftir að málþófinu lauk:
Ekki eru allir á eitt sáttir við þessa einokun þingmanna Miðflokksins á umræðunni. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari og þingmaður Sjálfstæðisflokksins setti þessa færslu á Twitter aðgang sinn:
Enn eru Miðflokksmenn í málþófi, komnir 12 tímar í dag (eða síðan í gær) og eru þeir þá búnir að ræða málið í yfir 30klst í 2. umræðu. Ekkert nýtt í málinu og löngu búið að svara öllum spurningum sem upp hafa komið. Mesta umræðan fer samt eftir sem áður í það sem ekki er í 3OP. pic.twitter.com/7n6Yi5LKSZ
— Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (@aslaugarna) May 21, 2019