Málskotsréttur tekinn af forseta?

Brigslyrði fuku milli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra og Birgittu Jónsdóttur, þingmanns Pírata, í umræðu um stjórnarskrána á fyrsta þingfundi vorþingsins í dag. Fram komu ásakanir um að framsókn hygðist taka málskotsrétt af forseta og að Píratar væru að sprengja upp sögulega sátt.

Birgitta Jónsdóttir spurði forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum hvort Sigmundur Davíð hygðist leggja fram þingmannamál um afnám verðtrygginar, enda væri það eitt af kosningaloforðum hans. Þaðan fór Birgitta yfir í hvort Sigmundur Davíð myndi e.t.v. fremur vilja boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um niðurfellingu verðtryggingar og ræddi sérstaklega ábyrgð Sigmundar á breytingum á drögum að nýrri stjórnarskrá sem ekki væru lýðræði til bóta.

Forsætisráðherra svaraði um sína aðkomu að vinnu stjórnarskrárnefndar að ef Birgitta vildi vita hvort ein grein en ekki önnur væri til umræðu í vinnu stjórnarskrárnefndarnú ætti Birgitta fremur að spyrja fulltrúa Pírata í nefndinni út í það. Sér að vitandi væri búið að forgangsraða þannig í nefndinni að sátt hefði náðst um nokkur atriði en nú sýndist honum sem Píratar væru að leita aðástæðu til að bakka út og sprengja samstarfið. Hann velti fyrir sér hvort ekki væri lengur stuðningur meðal Pírata um vinnu stjórnarskrárnefndar.

Hitnaði þá í kolunum og sagði Birgitta í seinna skiptið sem hún kom upp í pontu að það væri afar sérstakt að forsætisráðherra gæti aldrei svarað spurningum, hann færi alltaf að túlka þær. Þetta virðingarleysi væri með ólíkindum gagnvart þinginu. Forsætisráðherra hefði staðið í vegi fyrir að nefndin gæti skilað af sér. Staðhæfði Birgitta svo að það væri á ábyrgð framsóknar að komið hefði  fram tillaga inn í nefndina um að draga til baka málskotsrétt af forseta. Alveg væri ljóst að Sigmundur Davíð hefði með beinum hætti komið að því og staðið gegn því að hægt væri að ganga frá stjórnarskrármálinu samhliða forsetakosningum. Þá hafi hann dregið mánuðum saman að skipa fulltrúa BF í nefndina, það væri „skrípaleikur“ og „skammarlegt“.

Sigmundur Davíð ítrekaði þá í stuttu síðara svari að hann teldi að Píratar væru að sprengja upp sögulega sátt  sem til hefði staðið að gera á stjórnarskránni.