Málmfríður þingkona er látin

Málm­fríður Sig­urðardótt­ir, fyrr­ver­andi alþing­is­kona, lést á dval­ar­heim­il­inu Hlíð á Ak­ur­eyri á mánu­dags­kvöldið, 88 ára að aldri.

Frá þessu greinir Morgunblaðið.

Málm­fríður fæddist á Arn­ar­vatni í Mý­vatns­sveit 30. mars 1927. For­eldr­ar henn­ar voru Sig­urður Jóns­son, skáld og bóndi þar, hálf­bróðir Jóns Jóns­son­ar, alþing­is­manns í Múla, og kona hans Sól­veig Hólm­fríður Pét­urs­dótt­ir frá Gautlönd­um, hús­móðir, dótt­ir Pét­urs Jóns­son­ar, alþing­is­manns og ráðherra.

Eig­inmaður Málm­fríðar var Har­ald­ur Jóns­son, frá Ein­ars­stöðum í Reykja­dal, fædd­ur 5. janú­ar 1912, dá­inn 11. apríl 1976, bóndi á Jaðri í Reykja­dal.

Börn Málm­fríðar og Har­ald­ar, sem öll lifa móður sína, eru Þóra (fædd 1948), Sig­urður Örn (1951), Jón Ein­ar (1953), Helgi (1956), Mar­grét (1958), Hólm­fríður Sól­veig (1962) og Sig­ríður (1964).

Málm­fríður lauk kvenna­skóla­prófi í Reykja­vík 1947. Hún var hús­móðir á Jaðri í Reykja­dal 1948 til 1992, ráðskona á sumr­um hjá Vega­gerð rík­is­ins 1968 til 1985, aðstoðarráðskona við Krist­nesspít­ala á vetr­um 1981 til 1985, í fullu starfi frá 1985 til vors 1987. Hún var kenn­ari við grunn­skóla Reyk­dæla 1967 til 1979 og bóka­vörður við Amts­bóka­safnið á Ak­ur­eyri frá 1992 þar til hún lét af störf­um vegna ald­urs.

Málm­fríður var kjör­in á Alþingi fyr­ir Sam­tök um kvenna­lista 1987 og sat á þingi til 1991. Kjör­tíma­bilið á und­an hafði hún sest á þing sem varaþingmaður. Hún var formaður þing­flokks Sam­taka um kvenna­lista 1990 til 1991 og var í Vestn­or­ræna þing­mannaráðinu 1989 til 1991 eftir því sem fram kemur í Morgunblaðinu.