Bæjarfulltrúar Framsóknarflokks, L-listans og Samfylkingarinnar hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn Akureyrar næsta kjörtímabil og undirritað málefnasamning.
Starf bæjarstjóra verður auglýst.
Í málefnasamningi kemur m.a. fram að áhersla á félagslegt réttlæti og að allir njóti mannréttinda. Haldið verði áfram að virkja íbúa til lýðræðislegrar þátttöku og auka vægi íbúasamráðs.
Lögð verður áhersla á að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og bæta starfsskilyrði í leik- og grunnskólum bæjarins. Sérstök áhersla verður lögð á leiðir sem geta bætt líðan barna og ungmenna ekki síst með snemmtækri íhlutun og aðgengi að sérfræðiþjónustu innan veggja leik- og grunnskóla. Unnið verður að því að bæta þjónustu við aldraða og gera hana sveigjanlegri.
Farið verður í tilraunaverkefni annars vegar um styttingu vinnuvikunnar og hins vegar um samfelldan vinnudag yngri grunnskólabarna í samstarfi við frístund með tengingu við íþrótta- og tómstundastarf.
Lögð verður áhersla á að koma á beinu millilandaflugi.
Formennska í ráðum verður sem hér segir:
- Forseti bæjarstjórnar – L-listinn
- Formaður bæjaráðs – Framsóknarflokkurinn
- Stjórn Akureyrarstofu – Samfylkingin
- Frístundaráð – L-listinn
- Fræðsluráð – Framsóknarflokkurinn
- Skipulagsráð – Framsóknarflokkurinn
- Umhverfis- og mannvirkjaráð – L-listinn
- Velferðarráð – Samfylkingin