Mál­þófi lokið og fundur með seðla­bankanum

Annarri um­ræðu um frum­varp um afland­skrónu­losun og bindingar­skyldu á fjár­magns­inn­streymi er lokið. Um­ræður hófust í gær og tóku yfir 19 klukku­stundir. 

Frum­varpið var sam­þykkt með breytingar­til­lögum upp úr klukkan átta og gengur það nú til efna­hags- og við­skipta­nefndar og þriðju um­ræðu. 

Nú klukkan 21:00 mun síðan hefjast fundur efna­hags- og við­skipta­nefndar, en þar verða staddir, samkvæmt heimildum blaðsins, full­trúar Seðla­banka Ís­lands og stendur til að ræða málið þar.

Í um­­­sögn Seðla­bankans við frum­­varpið sagði að mikil­­vægt væri að ganga frá því sem fyrst en í gær rann upp gjald­­dagi á­­kveðins flokks ríkis­skulda­bréfa. Við það hafi um­­­fang afland­skrónu­­eigna í lausu fé aukist um nær 70 af hundraði eða sem nemur 25 milljörðum króna. 

Nánar á

https://www.frettabladid.is/markadurinn/malofi-loki-og-fundur-me-selabankanum