Sjálfstæðismenn á borði héraðssaksóknara

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent kæru tveggja hælisleitenda á hendur tveimur öryggisvörðum Sjálfstæðismanna til Héraðssaksóknara. Upp kom atvik á fundi Sjálfstæðisfélags Kópavogs, um þriðja orkupakkan, þar sem tveir menn á vegum flokksins gripu í tvo hælisleitendur og sögðust vera lögregluþjónar. Málið hefur nú verið sent til héraðssaksóknara þar sem það kunni að varða við 116. gr. almennra hegningarlaga.

Hælisleitendurnir Samuel Elijah, Moses Nwobodo og Ali Mayih Obayes Al-Ameri lögðu fram kæru fyrir stuttu á hendur tveimur mönnum sem höfðu afskipti af þeim á fundinum. Er kæran vegna minniháttar líkamsárásar og valdstjórnarbrots. Þorvaldur Sigmarsson er annar mannana sem þeir lögðu fram kæru gegn, en hann er fyrrverandi varðstjóri hjá lögreglunni ásamt því að vera stjórnarmaður í Sjálfstæðisfélagi Kópavogs.

Á myndbandi sem tekið var upp af atvikinu sést hvar tveir menn, merktir Sjálfstæðisflokknum með nafnspjöldum, koma að hælisleitandanum og segjast vera lögreglan. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, segir þeim ítrekað að setjast niður og sagði að þeir myndu ekki þurfa að hringja á lögregluna þar sem þessir menn væru lögreglan og benti á þá. „Við erum lögreglan, sestu niður“ sagði annar mannana við hælisleitandann.

Hér að neðan má sjá myndbandið.