„Það veikir ekki Samfylkinguna að þar séu ólíkar skoðanir á mikilvægum málum, þvert á móti. Stefna flokksins er hins vegar skýr og margsamþykkt og ég tala fyrir henni, en einstakir þingmenn geta haft önnur sjónarmið og eiga stjórnarskrárvarinn rétt til að láta þau í ljósi á Alþingi,“ segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar í svari sínu við skriflegri fyrirspurn frá Hringbraut.
Í sjónvarpsþættinum Kvikan á Hringbraut var forystuvandi Samfylkingarinnar ræddur í vikunni. Sagði Þá Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, að formannskosningar yrðu síðar á árinu. Spurð hvort hún styddi formanninn, Árna Pál, sagðist hún gera það en frjáls umræða og gagnýni væri innan flokksins.
Styrmir Gunnarsson blaðamaður og fyrrum ritstjóri Moggans hefur spáð að Samfylkingin þurrkist út á þessu ári. Nefnir hann m.a. þann vanda sem flokkurinn glími við eftir að Sigríður Ingibjörg Ingadóttur var hársbreidd frá að fella Árna Pál, munaði aðeins einu atkvæði. Nú síðast hafa væringar innan flokksins verið í umræðunni eftir að Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Helgi Hjörvarr lögðu fram frumvarp um afnám verðtryggingar á nýjum lánum. Blekið var varla þornað á pappírnum þegar Árni Páll lýsti því opinberlega að hann styddi ekki frumvarpið.
Hringbraut spurði Árna Pál hvort það að fram kæmi þingmannafrumvarp úr röðum flokksins sem hann styddi ekki myndi veikja flokkinn. Hann svaraði með ofangreindum hætti, en bætir við.
„Við deilum öll þeirri skoðun að verðtrygging sé óyndisúrræði sem stafar af veikburða gjaldmiðli og mikilvægasta verkefnið í vaxta- og peningamálum sé upptaka gjaldgengs gjaldmiðils sem hægt er að eiga viðskipti með utan landsteinanna.“