Mál Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar er mjög alvarlegur mannlegur harmleikur.
Þetta sagði Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, í ítarlegu sjónvarpsviðtali við ABC í Ástralíu, Lateline. Harmleikur Sigmundar Davíðs er þannig að Birgitta segist í sjónvarpsviðtalinu ekki vilja taka fyrrverandi forsætisráðherra þjóðarinnar fastari tökum en þurfi í uppgjöri við verk hans þegar hann hefur stigið til hliðar þótt hann eigi það sumpart skilið, segir Birgitta í sama viðtali.
Hún segir að búist sé við því að Sigmundur Davíð muni brátt aka um landið og reyna að lægja öldur innan Framsóknarflokksins í von um að geta endurreist æru sína og metorð innan flokksins. Hún sjái það ekki gerast. Það sé hluti hins mannlega harmleiks \"human tragedy\" eins og Birgitta kallar það án þess að útskýra frekar hvað hún á við.
Einnig segir Birgitta að burtséð frá því hvort Sigmundur Davíð sé sekur um lögbrot á grunni Panamskjalanna sé mikilvægt að ræða anda laganna og hvort tækniatriði og kunnátta hinna ríku til að teygja lagaramma sé e.k. samfélagslegt vandamál.
Birgitta segir einnig í viðtalinu að hún sé sjálf mjög umdeild manneskja og því ef til vill ekki best til þess fallin sjálf að verða næsti forsætisráðherra.
Sjá viðtalið við Birgittu í heild hér á ABC Lateline.