Í kvöld var lagt fram frumvarp á Alþingi um að veita Nargizu Salimova íslenskan ríkisborgararétt, ásamt fleirum. Allsherjar- og menntamálanefnd leggur frumvarpið fram og líklegt þykir að mælt verði fyrir því í kvöld og greidd atkvæði á morgun. Jafnan tekur Alþingi stuttu fyrir þingslit fyrir lista einstaklinga sem valdir eru til að fá ríkisborgararrétt.
Kjarninn greinir frá.
Nargiza er frá Kirgistan en henni var neitað um hæli hér en grunur leikur á að hún sé fórnarlamb mansals. Hún kom hingað til lands fyrir um átta mánuðum, sótti um alþjóðlega vernd en þeirri umsókn var hafnað af Útlendingastofnun.
Vegna mistaka stóð til að vísa henni úr landi á morgun, þriðjudag. Lögfræðingar Nargisu skiluðu inn greinargerð til kærunefndar útlendingamála og til stendur að nefndin skili svari fyrir klukkan níu í kvöld.