Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, sem ráðinn var framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar á sama tíma og hann var grunaður um aðild að Stím-málinu, frá þeim tíma sem hann gegndi bankastjórastöðu hjá Saga Capital bankanum, ritaði færslu á facebook um helgina þar sem hann lýsir hvernig hann hafi beðið árum saman eftir niðurstöðu.
Yfirskrift færslunnar er: „Til vina minna....“
Þar reifar Þorvaldur Lúðvík að á mánudaginn [í gær] hefjist aðalmeðferð í s.k. Stím-máli. „Það er nákvæmlega upp á dag 5 árum eftir að bankinn sem ég veitti forstöðu sætti húsleit í Reykjavík og á Akureyri og mér var veitt réttarstaða sakbornings. Fyrir tæpum tveimur árum var ég síðan ákærður fyrir hlutdeild í meintum umboðssvikum annars manns í öðrum banka, þar sem ég hefði “hvatt til og liðsinnt” við hið meinta brot, með viðskiptum okkar banka við Glitni.
Vatnaskil urðu við rannsókn málsins er tveir sakborningar fengu friðhelgi fyrir ákæru vegna sinna brota gegn því að þeir vitnuðu gegn sínum kollegum í Glitni,“ skrifar Þorvaldur Lúðvík og vitnar í frétt þar um.
Kemur næst að kafla þar sem hann reifar sálarlíf sitt.
„Málið hefur verið mínum nánustu erfitt og þykir mér það mjög miður. Það hefur líka náð að spilla gleðinni á köflum hjá mér undanfarin 5 ár, en mig gat ekki órað fyrir því að atburðir sem áttu sér stað fyrir sjö árum og hafa verið fimm ár í rannsókn, myndu halda mér á faglegum skóggangi svo árum skipti og enda síðan með ákæru 5 árum síðar. Guði sé lof að ég sé að upplagi léttlyndur og bjartsýnn.“
Það vakti mikla athygli þegar Þorvaldur var ráðinn framkvæmdastjóri hjá AFE og þótti umdeilt. Um þá ráðningu fer hann nokkrum orðum: „Ég er ákaflega þakklátur þeim sem hafa staðið við bakið á mér í þessum aðstæðum. Sérstaklega þakklátur er ég þeim sem ekkert hafa átt undir við að styðja mig í verki en gerðu það svo sannarlega, sbr. kjörnir fulltrúar sveitarfélaga hér fyrir norðan, sem réðu mig í vinnu fljótlega eftir að rannsókn hófst. Þá er ég þakklátur öllum þeim sem hafa stigið fram og stutt við bakið á mér, hvort heldur er í Bónus, á Fésinu eða á götum úti. Mikill stuðningur hefur komið úr mörgum og á tíðum óvæntum áttum.“
Aðalmeðferð stendur nú yfir sem fyrr segir en Þorvaldur Lúðvík segist telja sig saklausan:
„Að þessu sögðu tel ég mig saklausan, en í ljósi þess hvernig almennt er í pottinn búið með þessi mál, fræðilega sem lögfræðilega, ætla ég ekki að reifa það hér og treysti á eðlilegan farveg fyrir dómstólum, þar sem hlýtur að verða dæmt á grundvelli fyrirliggjandi gagna og staðreynda,“ er meðal þess sem Þorvaldur Lúðvík skrifar í færslu sinni.
Áður hefur hann sagt að það hafi verið honum léttir þegar ákært var í málinu en hann tók sér leyfi frá hluta trúnaðarstarfa fyrir AFE eftir að ákæran var birt honum.
Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, Jóhannes Baldurson, einn stjórnandi bankans, og Þorvaldur Lúðvík eru allir kærðir í Stím-málinu fyrir lánveitingar Glitnis til hlutabréfakaupa í Glitni og FL Group. Þeir neita sök fyrir dómi.
á mbl.is í dag kemur fram að Björgvin Þorsteinsson, lögmaður Þorvaldar Lúðvíks, hefur dregið til baka kæru sína til Hæstaréttar varðandi úrskurð sem héraðsdómur felldi í gær um aðgang verjanda að gögnum. Sjá frétt mbl.is hér.