Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hrósaði Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráðherra fyrir framgöngu hans að standa með alþjóðlegum viðskiptaþvingunum gegn Rússum í fyrirspurnatíma á Alþingi í morgun.
Hún spurði ráðherra um viðhorf hans til viðskiptaþvingana og sagði mikilvægt að Íslendingar héldu sig við samstöðu með bandamönnum og sameiginlegri utanríkisstefnu, enda væri ekki hægt að snúa frá þeirri stefnu vegna vegna hagsmunaþrýstings frá útgerðinni innanlands, sem tapar milljörðum á riftun makrílsölu.
Gunnar Bragi benti í svari sínu á að þegar upp kæmu alþjóðlegar deilur, væru þrjú samskiptastig þjóða á milli í boði. Samtal, þvinganir og vopnuð átök. Engin vinna stæði yfir í ráðuneytinu um að hverfa frá sameiginlegri utanríkisstefnu en sjálfsagt væri að fara yfir gildandi íslensk lög um þvinganir, skipaður verði starfshópur embættismanna til að skoða það mál.
Um gagnsemi viðskiptaþvingana sagði Gunnar Bragi þær hafa orðið óumdeilanlegar. Árangur hefði náðst í Suður-Afríku. Viðurkennt væri af hálfu Pútíns, forseta Rússlands, að þvinganir hafi áhrif þótt olíuverðið hafi e.t.v. enn meiri áhrif. „Við vitum ekki hvað hefði gerst í Evrópu vegna ástandsins í Úkraínu ef ekki hefi verið gripið til þvingana,“ sagði utanríkisráðherra. „Það er betra að grípa til þessara aðgerða en lenda í vopnuðum átökum,“ bætti Gunnar Bragi við.