Búist er við því að þinglok verði seinnipartinn í næstu viku svo fremi stjórnarliðar sættist á að geyma efnislega umræðu um makrílfrumvarp sjávarútvegsráðherra og bereytingar á rammaáætlun til haustþings.
Starfsáætlun þingsins hefur sjaldan eða aldrei farið jafn rækilega úr skorðum, en mánuður er liðinn frá því vorþinginu átti að ljúka og stefnir nú allt í það að þinghald vari fram í júlímánuð sem er harla fátítt, ef ekki einsdæmi í sögu löggjafarsamkundunnar.
Vaxandi eru á samkomulagi um frestun rammans til næsta hausts, en stjórnarliðum er orðið fulljóst að ramminn er límið sem heldur stjórnarandstöðunni saman og muni hún því hvergi kvika við andstöðu sína við þær breytingar sem meirihluti atvinnuveganefndar hefur boðað á honum.
Eftir stendur þá makríllinn. Sigurður Ingi Jóhannsson segir á visir.is í dag að málið sé nú í höndum atvinnuveganefndar og gengið hafi verið að flest öllum kröfum stjórnarandstöðunnar. \"Eins og frumvarpið lítur út núna gilda lögin aðeins í eitt ár. Ég vil því meina að gengið hafi verið að kröfum stjórnarandstöðunnar. Það er þá flötur fyrir samstarfi við að ljúka þingi,“ segir hann.
Róbert Marshall, þingflokksformaður Bjartrar framtíðar, telur í samtali við sama vef að þinglok geti orðið í lok næstu viku: \"Lögin gilda í eitt ár miðað við hvernig málið liggur núna, en auðvitað er álitaefni hvort nauðsynlegt sé að klára þetta nú á sumardögum eða draga þetta fram í september. Það er auðvitað ekkert klárt um þinglok fyrr en makríllinn er frá, en allt annað er klárt,“ segir Róbert.