,,Elín Agla er sú manneskja sem á síðustu árum hefur beitt sér mest og best í þágu Árneshrepps. Hún hefur staðið fyrir viðburðum og laðað ótal manns, jafnt frá Íslandi og útlöndum, til minnar hjartkæru sveitar. Aðförin að henni er það lágkúrulegasta sem ég hef orðið vitni að.“
Þetta sagði Hrafn Jökulsson í samtali við Hringbraut, en einn af eigendum Seljaness í Árneshreppi hótar Elínu miljóna skaðabótakröfum og vinnuflokkum að sunnan, til að koma í veg fyrir að hún geti haldið alþjóðlegt námskeið um íslenska þjóðmenningu. Elín, ásamt sjálfboðaliðum, er nú að reisa tjald í landi Seljaness, sem notað verður í júlí til að halda námskeið í margvíslegum þjóðmenningarfræðum, og er von á erlendum fyrirlesurum og tónlistarmönnum. Kröfuhafinn, sem er á níræðisaldri og hefur ekki komið í Árneshrepp í áratugi, er eindreginn virkjanasinni, en Elín hefur á málefnalegan hátt lýst andstöðu við virkjun Hvalár í Ófeigsfirði, og er varamaður í sveitarstjórn Árneshrepps.
Í Facebook-færslu um málið segir Hrafn:
Fyrir tíu árum skrifaði ég eina litla bók sem fjallar um Árneshrepp, þangað sem ég kom fyrst sem vinnupiltur þjóðhátíðarárið 1974. Bókin var skrifuð í skólastjórabústaðnum í Finnbogastaðaskóla, þar sem Elín Agla var skólastjóri 2007 til 2010. Nú er hún hafnarstjóri í Norðurfirði, og sáldrar kringum sig jákvæðni með sínu bjarta brosi og óbugandi krafti. Bókin hefði aldrei verið skrifuð án hennar. Við eignuðumst þessa bók saman, og það sem meira er, ljósgeislann dóttur okkar -- sem varð síðasti nemandinn í 80 ára sögu Finnbogastaðaskóla.
Elín hefur á síðustu árum verið drifkraftur í Árneshreppi, staðið fyrir viðburðum, laðað fjölda fólks norður þangað, aldrei hallað orði á nokkurn mann, hvursu ósammála sem viðkomandi kann að vera í þessum blessuðu virkjanamálum, og ávallt reynt að bera klæði á vopnin. Nú er reynt að bregða fæti fyrir hana -- eignalausa -- með milljóna hótunum frá þeim sem eru henni ósammála, sbr. sjá hér.
Hrafn hefur nú hrundið af stað söfnun í þágu Elínar, með því að selja síðustu eintökin í hans fórum af bókinni ,,Þar sem vegurinn endar\". Bókin kom fyrst út 2007 og hefur verið endurprentuð nokkrum sinnum, og hlotið frábæra dóma, jafnt gagnrýnenda sem almennings.
Hrafn sagði við Hringbraut: ,,Elín Agla er nú að kljást við landeigendur í Árneshreppi, sem eiga milljónatugi undir því að Hvalárvirkjun verði að veruleika. Á bak við þá standa andlitslausir, erlendir auðkýfingar með milljarða í húfi. Að ráðast með þessum hætti gegn einstæðri, eignalausri móður er það lágkúrulegasta sem ég hef séð á langri ævi. Elín hefur á síðustu árum verið málsvari jákvæðni í Árneshreppi, aldrei hallað orði á nokkurn mann, sama hversu ósammála viðkomandi er í virkjanamálum. Hér er verið að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Hvatamenn að þessari aðför eru sannkölluð lítilmenni.“
Hrafn segist hafa fengið ótrúlega jákvæð viðbrögð við sölunni á síðustu eintökunum af ,,Þar sem vegurinn endar.“
,,Viðbrögðin sýna að ótal mörgu fólki er misboðið vegna aðfararinnar að minni kæru Elínu Öglu. Margir sem eiga bókina hafa sent mér skilaboð um að þeir vilji styrkja þessa einstöku baráttukonu, þrátt fyrir að eiga eintak. Svo sýnist mér að þessi litla bók sé að eignast marga nýja lesendur. Í augnablikinu eru 22 eintök eftir.“
Hrafn hefur fengið börn sín til að dreifa bókinni til þeirra sem panta hana. Hún kostar 5000 krónur, og er sendingarkostnaður innifalinn.
Hrafn sagði að lokum í samtalinu við Hringbraut:
,,Ég dáist óendanlega að Elínu Öglu. Hún tók að sér skólastjórn Finnbogastaðaskóla, þegar enginn vildi við honum líta. Nú er hún hafnarstjóri í Norðurfirði og skutlast fram og aftur á lyftaranum til að taka við afla okkar knáu sjómanna. Þess á milli er hún vakin og sofin yfir framtíð Árneshrepps. Sjálfur á ég til að nota stóryrði um þessa blessuðu virkjun, megi hún aldrei verða að veruleika, en Elín Agla hallar aldrei orði á nokkurn mann. Aðförin að henni, og viðleitni hennar til að láta jákvæða hluti gerast í mínum gamla hreppi, er auðvirðileg.\"
Hægt er að panta bók Hrafns, meðan upplag endist, á Facebook-síðu hans, en öll innlegg fara á reikning Elínar Öglu.
Hrafn segir í Facebook-færslu, og vitnar í kjörorð móður sinnar, Jóhönnu Kristjónsdóttur:
Látum ekki Elínu Öglu standa eina gegn þessari algjörlega makalausu aðför. Leggið beint inná hana og sendið mér staðfestingu. Megið gjarnan deila.
,,Til lífs og til gleði!\"
Kennitala: 1004743529
Reikningsnúmer: 526 14 208324
Fram til sigurs.