Maí var 2 gráðum kaldari en vant er






Nýliðinn maímánuður var sá kaldasti frá því árið 1982, en mánaðarmeðalhitinn í Reykjavík mældist 4,6 stig, eða 2,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára sem eru fáheyrð frávik frá meðalhita. Mánaðarmeðalhitinn á Akureyri var 4 stig og 2 stigum undir meðallagi.






 


Í samantekt Veðurstofu Íslands um hitafar í nýliðnum mánuði kemur fram að kuldinn var mestur á hálendinu, en þar var hann allvíða 3 til 4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Mildast var á Austfjörðum þar sem hiti var um 1,1 til 1,5 stig undir meðalári.


Þrátt fyrir kuldatíð mældust sólskinsstundir í Reykjavík 35 klukkustundum yfir meðallagi síðustu tíu ára, eða 277,9 stundir. Akureyringar voru ekki baðaðir jnafn mikilli sól því hana fengu þeir í aðeins aðeins í 99,8 stundir og hafa sólskinsstundirnar nyrðra ekki mælst jafnfáar í maí á Akureyri frá því 1983.