Hitafarið á landinu næstu daga verður harla kaldranalegt um norðan- og norðaustanvert landið enda fer þar yfir hvasst norðanbál með slyddu allt frá föstudegi til mánudags þegar á að heita að kominn sé júní á Íslandi.
Þessa veðurlags sér stað á heiðum uppi um stóran hluta landsins en feiknlegar fannir eru við þjóðveginn yfir margar fjölförnustu fjallvegi landsins, svo sem Steingrímsfjarðarheiði í vestri og Fjarðarheiði í austur. Hrímþoka og slydda er enn daglegur viðburður á þessum slóðum.
Sá mánuður sem nú er að kveðja Íslendinga er einn sá kaldasti í 70 ár en á þeim tíma hafa aðeins þrír maímánuðir verið kaldari en sá sem nú er brátt að baki. Meðalhitinn í maí hefur verið 4,1 stig en árið 1979 var hitinn 1,4 stig. Hitinn núna er 1,9 stigum undir meðallagi áranna 1961 til 1990 og 2,5 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára.
Það sem verra er er að kuldinn er þrálátur í kortunum og bendir ekkert til annars en að byrjun júní verði fólki, skepnum og gróðri heldur mótdrægur hvað sumarhita varðar.