Magurt ár ...eftir fimm góð ár

Tryggingarstærðfræðileg staða sjóðanna án bakábyrgðar ríkis og sveitarfélaga var jákvæð í árslok 2015. Staða almennra lífeyrissjóða er því nokkuð traust.

Allt öðru máli gegnir hins vegar um tryggingarstærðfræðilega stöðu lífeyrissjóða með bakábyrgð.  Hún var neikvæð í árslok 2015. Varla hefur þróunin í fyrra orðið til að bæta hana að ráði. Að minnsta kosti ef tillegg opinberra aðila er undanskilið. 

Útlit er fyrir að raunávöxtun íslenskra lífeyrissjóða hafi að jafnaði verið lítil á síðasta ári. Er það vegna styrkingar krónu og rysjóttar tíðar á hlutabréfamarkaði.

Hlutfall erlendra eigna af heildareignum sjóða lækkaði lítillega. Þetta gerist þrátt fyrir veruleg kaup sjóðanna á erlendum fjáreignum á árinu.  Góð ávöxtun árin á undan mildar þó áhrif þróunarinnar í fyrra á stöðu sjóðanna. 

Er raunávöxtun undanfarin fimm ár væntanlega að jafnaði yfir 3,5% tryggingarstærðfræðilegu viðmiði sjóðanna. Þrátt fyrir slaka ávöxtun í fyrra.  Ekki þarf að örvænta um stöðu sjóðanna.

Nána www.islandsbanki.is/morgunkorn