Magnús tumi: hraunið myndi sennilega renna vestan við grindavík

Þeir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands og Sigmundur Ernir rýna í jarðfræðilega sérstöðu Reykjanesskaga í fréttaþættinum 21 í kvöld og velta meðal annars fyrir sér hvert hraunið muni renna, verði af eldgosi á svæðinu.

Magnús Tumi segir margar sviðsmyndir mögulegar á svæðinu - og þá verstu vissulega að um tíu kílometra löng sprunga opnist, þar sem kvika þrýstist upp og veiti hrauni, í fyrstu þunnu, þangað sem landinu halli til sjávar. Ef gosið komi upp vestan Þorbjarnar, sem sé sennilega líklegast renni það ugglaust vestan við Grindavík, en geti hins vegar haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir Bláa lónið og starfsemi HS Orku á svæðinu.

Komi til eldgoss, gæti það staðið yfir í 300 ár, með hléum, segir hann, jafnvel 50 ára hléum inn á milli, eins og sagan af fyrri gosum virðist kenna mönnum.

En það megi vel lifa við þetta, svo sem Mývetningar gerðu í nálega áratug frá miðjum áttunda áratug síðustu aldar. Og í öllu þessu mengi megi menn heldur ekki gleyma bestu sviðsmyndinni, segir Magnús Tumi, að hans þurfi ekki við í svona viðtölum á næstunni.