Magnús þór leiðir lista flokks fólksins

Magnús Þór Hafsteinsson, fyrrverandi alþingismaður mun leiða lista Flokks fólksins í Reykjavíkurkjördæmi norður í komandi Alþingiskosningum.

Magnús Þór sat á Alþingi fyrir Frjálslynda flokkinn kjörtímabilið 2003-2007 fyrir Suðurkjördæmi. Undanfarin ár hefur hann sinnt bókaskrifum, hvalveiðum, blaðamennsku og starfar sem ritstjóri blaðsins Vesturland. Magnús er með meistaragráðu í fiskifræði frá Háskólanum í Björgvin í Noregi en hefur grunnmenntun sem búfræðingur. 

Magnús Þór Hafsteinsson, þýddi bókina Þjóðaplágan íslam á íslensku. Bókin heitir á frummálinu Islam. Den 11. landeplage og er eftir Hege Storhaug, norska baráttukonu gegn múslimum sem gagnrýnd hefur verið fyrir að ala á hatri gegn innflytjendum. Magnús Þór sakaði stærri bókaverslanir í Reykjavík um að fela bókina í búðum sínum.

Stundin rifjaði upp í vor að Magnús Þór hafi vakið athygli fyrir nokkrum árum þegar hann lagðist gegn því að Akranessbær tæki á móti þrjátíu palestínskum flóttamönnum.