Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Fjallabyggð, ritar undir fundarboð þar sem boðað er til aukafundar í bæjarstjórn sameinaðs sveitarfélags Siglufjarðar og Ólafsfjarðar, Fjallabyggðar, á morgun.
Í dagskrá fundarins segir: „Ósk um lausn frá störfum“.
Upplýsist þar með að forseti bæjarstjórnar Fjallabyggðar, sem handtekinn var í rassíu sérstaks saksóknara á dögunum, Magnús Jónasson, mun hætta í embætti frá og með morgundeginum. Magnús er grunaður um fjárdrátt hjá AFLi Sparisjóði á Siglufirði.
Ríkisútvarpið sagði fyrst frá.