Magnús geir: rúv þarf að skera niður

Magnús Geir Þórðarson, útvarpssstjóri sér fram á miklar aðhaldsaðgerðir í rekstri Ríkisútvarpsins á næsta ári eftir stjórnarmeirihlutinn á Alþingi samþykkti að skerða útvarpsgjaldið við atkvæðagreiðslu um fjárlög ríkissins 2016.

Útvarpsgjaldið lækkar um 1.400 krónur, fer úr 17.800 í 16.400 um áramótin. Magnús Geir kveðst hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með atkvæðagreiðsluna, nú sé augljóst að skerða þurfi dagskrárþjónustu Ríkisútvarpsins. Hann muni nú ásamt stjórn og yfirmönnum stofnunarinnar meta áhrif lækkunarinnar og gera áætlanir um viðbrögð.
 

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra sagði við RÚV í gærkvöld að Ríkisútvarpið fengi sérframlag úr ríkissjóði á næsta ári upp á 175 milljónir króna, sem verja eigi til kvikmynda- og þáttagerðar. Fjárframlag til Ríkisútvarpsins verði því áfram það sama 2016 og það var 2015. Magnús segir að þó að verið sé að skerða tekjur RÚV að raunvirði umtalsvert meira en sem nemur sérframlaginu: \"Við höfum verið að forgangsraða í þágu innlends efnis, og þetta vegur eitthvað á móti.“

Þrátt fyrir það þurfi nú að skera niður í dagskrá og þjónustu.