Magnús geir: boðar hallalaust rúv

Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri segir að Ríkisútvarpið verði ekki rekið með halla á yfirstandandi rekstrarári enda þótt svo fari að útvarpsgjald verði lækkað líkt og meirihluti fjárlaganefndar leggur til.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í gær, en Hringbraut vitnaði í gær til skrifa blaðsins þess efnis að stjórnendur RÚV gerðu ráð fyrir taprekstri miðilsins í vetur. Því vísar Magnús Geir á bug í blaðinu í dag, en stjórn RÚV sendi frá sér tilkynningu í gær vegna skrifa Morgunblaðsins og segir þar að allar áætlanir stofnunarinnar geri ráð fyrir hallalausum rekstri næstu misserin eins og raunin hafi verið á síðasta rekstrarári.

Í ítarlegri úttekt Morgunblaðsins á rekstri RÚV í dag segir að stöðugildum á RÚV hafi fjölgað að undanförnu og þau séu nú fleiri en eftir uppsagnahrinuna í nóvember 2013.