Magnús Geir Þórðarson verður áfram útvarpsstjóri RÚV næstu fimm árin. Ráðningartímabil útvarpsstjóra er fimm ár og í þessum mánuði eru einmitt fimm ár síðan stjórn RÚV tilkynnti ráðningu Magnúsar Geirs sem útvarpsstjóra. Kjarninn.is greinir frá.
Kári Jónasson, stjórnarformaður RÚV, segir í samtali við Kjarnann að engin áform séu um að auglýsa stöðu útvarpsstjóra lausa til umsóknar þó ráðningartímabili Magnúsar Geirs ljúki á næstunni. Hann sé öflugur útvarpsstjóri og muni sinna embættinu til ársins 2024. Magnús Geir hóf störf 1. mars 2014.
Í frétt Kjarnans kemur fram að samkvæmt lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðils í almannaþágu, er útvarpsstjóri ráðinn til fimm ára í senn. Hann er framkvæmdastjóri fyrirtækisins, sem er langumsvifamesta fjölmiðlafyrirtæki landsins, og æðsti yfirmaður allrar dagskrárgerðar. Samkvæmt lögunum er stjórn RÚV heimilt að endurráða útvarpsstjóra einu sinni og ákvað stjórnin að nýta sér það ákvæði.