Magnús Ólafur Garðarsson, stofnandi United Silicon á Íslandi, hefur verið stefnt af þrotabúi fyrirtækisins. Samkvæmt stefnunum, en þær eru þrjár talsins, á Magnús að hafa átt að svíkja út rúmlega 1.800 milljónir króna út úr fyrirtækinu. Héraðssaksóknari er með mál Magnúsar nú til rannsóknar. Í samtali við Fréttablaðið sagði Geir Gestsson, lögmaður þrotabúsins, að það lægi ekki fyrir hvort höfða eigi fleiri dómsmál gegn Magnúsi.
Samkvæmt stefnunni er Magnús sakaður um að hafa látið fyrirtækið greiða um 1000 milljónir inn á reikning hjá hollenska fyrirtækinu Pyromet Enineering. Um er að ræða 26 greiðslur á um tveggja ára tímabili. Þetta hollenska fyrirtæki var stofnað nokkrum dögum fyrir fyrstu greiðslu og var svo lokað fljótt eftir síðustu greiðsluna. Skráður eigandi hollenska fyrirtækisins var ekki ókunnur Magnúsi, því hann er fyrrum sambýlismaður móður Magnúsar. Í skýrslutöku yfir Magnúsi gat hann ekki sýnt á neinn hátt fyrir hvað þetta hollenska fyrirtæki væri að fá greitt fyrir.