800 hestöfl í einum bmw

Kíkt í skúrinn með Jóa Bachmann verður á dagskrá Hringbrautar í kvöld. \"Við fræðumst um Austin 7, 1926 árgerð. Þessi magnaði bíll er smíðaður úr áli og er smábíll og þar með var auðvelt að koma honum fyrir á þessum árum þegar lítið var um stæði. Hann eyðir litlu og hentaði því sérstaklega vel fyrir þá efnaminni en þetta voru bílaframleiðendur að hugsa um á sínum tíma,\" segir Jói.

Þessi skemmtilegi smábíll er í eigu Braga Guðmundssonar sem gerði hann upp frá grunni frá 2005 til 2006. Fyrsti skráningardagur eftir uppgerð er 28 apríl 2006. Bíllinn er með upprunalega yfirbyggingu, drifbúnað, mótor, grind, felgur og fleira og fleira. Vélin er 747 rúmsentimetrar og 10,5 hestöfl við 2400 snúninga. 56 mm bor, slaglengd 76 mm. Þriggja gíra beintenntur gírkassi. Vírabremsur á afturhjól. Handbremsa er í framhjól, vír. Demparar eru úr tréplötum sem þrýstast saman við átak. Magnettukveikja, 6 volta rafkerfi, rafstart og sveif. Yfirbygging, mótorhús, gírkassi ofl. er úr áli. Þyngd bílsins er 440 kg. og lengd 2750 sm. Breiddin er 119 sm. Hámarkshraði er 40 enskar mílur. \"Vel uppgerður bíll ahjáBraga.\"

Einnig verður haldið áfram að skoða hjá Bigga Sig driftara en hann lofar allt að 800 hestöflum í BMW-inum í sumar þar sem hann er að gera klárt fyrir keppnistímabilið. Hann hefur sérsmíðað driftbíl fyrir keppnir sumarsins.

\"Auðvitað fórum við á æfingu, þar æfði margt fólk sig fyrir komandi tímabíl og mjög margir fylgdust með. Þarna  var fjöldi manns samankominn til að fylgjast með æfingum nýliða sem og lengra komnum.  Glæsileg braut fyrir keppendur sem og áhorfendur. Driftið nýtur mikilla vinsælda og hefur nýliðum fjölgað mikið frá síðasta sumri og má búast við hörkukeppnum í sumar.\"