Sirkusdýrið, sölukonan og magadansmærin Margrét Erla Maack sagði í þættinum Kvennaráð á föstudag að enda þótt hún væri ekki viðkvæm fyrir eigin maga þá væri það greinilega afar algengt meðal kvenna. Hún beraði á sér magann í þættinum.
Þátturinn fjallaði að þessu sinni um þá útlitsdýrkun sem tröllriðið hefur fjölmiðlum á undanliðnum misserum þar sem engin kona má að því er virðist vera einu grammi frá samþykktu útliti tískurisanna sem helst vilja steypa allar konur í sama mót. Þátturinn vakti mikla athygli og umtal, enda efnið mjög áberandi í umræðunni.
Í þættinum ræddi Björk við Margréti, Sigrúnu Danélsdóttur og Elvu Björk Ágústsdóttur um dýrkunina en jafnframt mikilvægi líkamsvirðingar en tvær þær síðastnefndu fara fyrir samtökum sem helga sig því efni. Þegar talið barst að sundferðum og átáki sem snyrtivörumerkið Dove stóð nýverið fyrir hér á landi mátti heyra að bikiní væri ekki ofarlega á óskalistanum; maginn væri klárlega viðkvæmasta svæði kvenna. Margrét Erla svaraði þessu þó rækilega til með því að fletta upp um sig í sófanum og bera á sér magann við mikinn fögnuð hinna kvennanna í myndverinu.
Hægt er að nálgast allan þáttinn á hringbraut.is og einnig styttri klippur úr honum á forsíðu vefjarins.