Maggi: örlögin réðust undir sviðinu

Áhorfendur voru nærri góðu gamni í Mannamálsþætti gærkvöldsins þar sem aufúsugesturinn Magnús Kjartansson fór með himinskautum í líflegum lýsingum sínum af löngum og merkilegum tónlistarferli.

Samtal þeirra Sigmundar Ernis, sem nú er hægt að nálgast hér á vef stöðvarinnar, byrjar á sögunni á bak við Trúbrot, eða öllu heldur hvernig Magnús rataði ungur inn í þá goðsagnarkenndu ofursveit sem yfirleitt prýðir efsta sæti í vali sérfræðinga á áhrifamestu rokksveitum íslenskrar tónlistarsögu. Maggi var sumsé ungur að spila á trompet með Stefáni vini sínum Ólafssyni, síðar prófesor í Háskóla Íslands - og hvorugur átti von á miklum tónlistarframa suður í Keflavík á þessum sjöunda áratug síðustu aldar. En svo kom kallið; enn einu sinni átti að halda tónlistarkeppni í Austurbæjarbíó að hætti Gulla í Karnabæ - og nú voru góð ráð dýr; rokkstjörnunum í Hljómum hafði borist sú njósn að aðrar vinsælar sveitir á borð við Flowers og Roof Tops ætluðu sér að breikka gamla hráa rokkhljóminn með nýstárlegum hljóðfærum uppi á sviði, músíkin var jú að súrna, mosavaxnar útsetningar í anda síns tíma voru að slá út gamla gítarplokkið - og Hljómastrákarnir þurftu á nýjum ómi að halda eins og aðrar grúppur sem komnar voru undir áratugamótin 1970.

Og Gunni og Rúnar hringdu í Magga og Stebba, trompetleikarana ungu - og þegar þeir, sakir aldurs, voru komnir á undanþágunni inn á þennan líka fína skemmtistaðinn sem var á pari við Hörpu á sinni tíð áttaði sá þeirra tveggja ungu mannanna sem átti eftir að endast lengur í tónlistinni að þetta væri sko eitthvað fyrir hann; flottklæddir stælgæjar innan um glæsilegar fegurðardísir sem þarna voru að taka þátt í keppninni Ungfrú Ísland og ekki sakaði að þær skiptu um föt í sama litla verelsinu undir sviði og þeir Maggi og Stebbi biði í áður en haldið var upp á sviðið: \"Þarna sá ég auðvitað, berum augum, að þetta var bransi fyrir mig,\" segir Maggi með glotti á vör í á að giska fjörlegum þættinum þar sem fjöldi bransasagna fær að fjúka, þar á meðal eftirminnilega klaufalegt \"hætt\" Hjartar Howser úti í Síberíu um árið sem er einmitt sagan af versta \"hætti\" nokkurs manns í íslenskri hljómsveit.

Mannamál í hláturmildara lagi er endursýnt í dag og um helgina og einnig sjáanlegt sem fyrr segir á vef stöðvarinnar eins og allir aðrir þættir hennar.