Magga frikka bannar hildi lilliendahl: „þetta fólk var bara hér til að njósna“

Margrét Friðriksdóttir sem titlar sig frumkvöðlafræðing ákvað nýverið að banna Hildi Lilliendahl Viggósdóttir á Stjórnmálaspjallinu en þar er Margrét við völd. Tæplega tíu þúsund manns eru þar meðlimir. Ástæðuna má rekja til þess, að sögn Margrétar, að hún hafi verið bönnuð á grínsíðunni „Þar sem við erum öll miðaldra“ á Facebook. Þar er Hildur stjórnandi ásamt tíu öðrum. Margrét birti stutta yfirlýsingu á Stjórnmálaspjallinu þar sem hún segir:

„Femínistapakkið á miðaldra síðunni blokkaði mig fyrir ekkert Hildur Lill er admin þar, ég svaraði til baka og blokkaði hana hér.“

Virðist Margrét hafa tekið banninu nærri sér en neitar að vera hörundsár.

„Neinei, vil bara ekkert pakk hingað á spjallið, halda þessu hreinu og beinu.“

Margrét lét ekki duga að vísa Hildi af stjórnmálaspjallinu. Í reiði sinni úthýsti hún öllum stjórnendum á grínsíðunni þannig að þeir geti aldrei tekið þátt í umræðum á Stjórnmálaspjallinu. Þá skorar Margrét á fólk að skrá sig úr gríngrúppunni, sem hún virðist líta á sem stórhættulega, og jafnframt sé hætta á að það verði bendlað við áróður Hildar, líkt og hún orðar það. Á Stjórnmálaspjallinu er Margrét spurð hvort þetta sé nú ekki fulllangt gengið. Margrét svarar:

„Ekkert að því, þetta fólk var bara hér til að njósna og níðast á, eins og Hildi er svo tampt, stundum þarf að svara hörðu með hörðu [...] Þessir feministafasistar hafa gott af því að bragða á eigin meðali finnst mér.“