Pavarotti var fúll út í mig

Það er fráleitt leiðinlegt að heyra heimssöngvarann Kristján Jóhannsson segja frá sigrum sínum og áskorunum í 100. Mannamálsþættinum sem sýndur var í gærkvöld á Hringbraut, en þá rann seinnihluti viðtals Sigmundar Ernis við akureyska tenórinn yfir skjáinn. Hann má nú sjá hér á vef stöðvarinnar.

Í fyrri hlita viðtalsins, sem sýndur var fyrir viku, mátti heyra kostulegar lýsingar hans á æskuárunum heima á Akureyri, en þar gerirr hann óspart grín að fyrirferð sinni og hávaða - sem raunar hefur fylgt honum alla ævi. Hann ræðir þar uppruna sinn í þaula; það að vera Konnari, en vel að merkja; þótt pabbinn hans, Jói Konn hafi verið Skagfirðingar líti hann á sig sem meiri Þingeying og líkist þannig Fanneyju móður sinni meira.

Hann stofnaði ungur heimili nyrðra og lærði járnsmíði, en söngurinn varð smám saman stærri partur af lífi hans og ástríðu - og svo fór, ekki síst fyrir hvatningu Sigurðar Demetz að hann hélt út til Ítalíu í fullburða söngnám. þar hafði hann tvö ár, lagði allt undir - og nýtti tímann vel og var lánsamur, jafnvel mafían reddaði honum heimild til að taka þátt í þeim söngkeppnum sem komu honum á kortið - og hjálpaði honum að því leyti á toppinn. .

Þættirnir með Kristjáni eru sumsé tveir; hann rúmast ekki í einu Mannamáli - og í þeim síðari, xsem frumsýndur var í gærkvöld, segir hann af kynnum sínum af Luciano Pavarotti sem var helst til fúll út í hann við fyrstu kynni, svo sem sjá má í þessari klippu HÉR.

Hann segir og frá öllum sigrunum á sviði, en líka kvíðanum, svo sem þegar hann var við það að guggna í búningsherberginu í Scala í þann mund sem hann var að fara að debútera í því eina sögufrægasta óperuhúsi heims, fyrstur Íslendinga, en vvinur hans, Sveinn Einarsson, stappaði þar í hann stálinu.

Hann náði á toppinn, eignaðist fúlgur fjár, þökk sé sjálfstraustinu sem öfundarmenn hans á Íslandi kölluðu alltaf mont, ellegar norðlenskt oflæti, en svo kom hann heim eftir 37 ára sigurför um heiminn, raunar blankari en hann hafði vonast eftir, enda búinn að tapa mestum hluta sparnaðarins í efnahagshruninu; já, ég tapaði næstum því öllu mínu, segir hann einlæglega í viðtalinu.

Mannamál eru frumsýnd öll fimmtudagskvöld á Hringbraaut klukkan 20:30.