Námið er aldrei metið

Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara er gestur á Þjóðbraut í kvöld. Hann fer yfir nýgerðan kjarasamning kennara sem var gerður til einungis eins árs. Meðal annars að grunnlaun kennara fari núna yfir 500 þúsund. Ekki er rúm fyrir mikla yfirvinnu í grunnskólum en um það er meira hjá framhaldsskólakennurum.

Ólafur segir að það séu rök með því að grunnskólakennarar séu á sambærilegum launum og framhaldsskólakennarar sem hafa nokkuð hærri tekjur. Báðar stéttir eru með fimm ára nám að baki. Aðspurður hvort að námið sé ef til vill of langt þar sem kennarar hafi aldrei fundist það metið til launa, segir Ólafur að svo sé ekki. Það haldi uppi gæðum námsins en spurningin eigi rétt á sér.

Hugmyndir um að kennarar geti bætt kjör sín yfir sumarið sé lífseig mýta og slíkar vangaveltur eigi aftur á móti ekki rétt á sér.

Varðandi kirkjusókn grunnskólabarna fyrir jólin segir Ólafur að lokum að sér finnist ekkert að slíku. Sín vegna mætti heimsóknin vera til Ásatrúarhofsins eða til annars konar söfnuða. Hann líti á þetta sem fræðslu um trúarbrögð og sjái ekki hvaða máli það skipti að hún fari fram í kirkjum.