Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, mættu ekki á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, sem var boðaður í dag vegna svokallaðs sendiherrakapals sem var ræddur á Klaustursupptökunum. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mættu á fundinn og sátu fyrir svörum. Vísir.is er meðal þeirra sem greina frá.
Á upptökunum má m.a. heyra Gunnar Braga, fyrrverandi utanríkisráðherra, tala um hvernig hann telji sig eiga inni hjá Sjálfstæðisflokknum eftir að hafa skipað Geir H. Haarde sem sendiherra og vænti þess að verða skipaður sendiherra sjálfur þegar fram líði stundir. Sigmundur Davíð segir einnig á upptökunum að Bjarni hafi sagt Guðlaugi Þór að „leysa málið.“
Gunnar Bragi og Sigmundur Davíð sendu frá sér yfirlýsingar sem voru lesnar upp af Helgu Völu Helgadóttur, formanni nefndarinnar, í upphafi fundar. Í yfirlýsingum sínum fordæmdu þeir tilurð fundarins, enda telji þeir Klaustursupptökurnar ólögmætar. Gunnar Bragi bætti við að hann hafi á opinberum vettvangi viðurkennt að með ummælum sínum á Klaustri hafi hann farið með rangt mál sem eigi ekki við nein rök að styðjast.
Guðlaugur Þór sagði á fundinum að engin loforð eða vilyrði um skipan sendiherra hafi beðið á hans borði þegar hann tók við sem utanríkisráðherra. Hann hafi setið fund með Sigmundi Davíð og Bjarna, þar sem áhugi Gunnars Braga á sendiherrastöðu var ræddur, en að hann hafi ekki verið beittur neinum þrýstingi þar. Hann hafi auk þess ekki ennþá skipað sendiherra á þeim rúmu tveimur árum sem hann hafi starfað sem ráðherra.
Bjarni sagði umræddan fund með Guðlaugi Þór og Sigmundi Davíð um áhuga Gunnars Braga á sendiherrastöðu einungis hafa snúist um að beina sýndum áhuga í réttan farveg, svo Gunnar Bragi gæti fengið upplýsingar um hvernig staðan væri beint frá utanríkisráðherra. Bjarni ítrekaði að hann hafi enga aðkomu átt að ákvörðun Gunnars Braga um skipun Geirs H. Haarde sem sendiherra.