„Vill vara við innbrotsþjóf sem skyndilega stóð inni á stofugólfi hjá mér, ógnandi, lét sem maður væri á eftir sér, ég vísaði honum á dyr, skömmu síðar var ég var við hann fara inn í annan stigagang en kom þaðan út og hljóp á brott,“ segir Viktor, íbúi á Seljabraut í Breiðholti, í færslu í íbúahópi Breiðhyltinga.
Viktor segir að hann hafi strax látið lögreglu vita: „Lýsing: Í ljósum jogging buxum, dökkri mittisúlpu með ljósa húfu, ca 1.75 á hæð evrópuútlit, enskumælandi. Mjög ör, eflaust á örvandi efnum og áfengislykt. Fylgist þið vel með ókunnum mannaferðum.“
Færslan hefur vakið mikil viðbrögð meðal íbúa, segir einn íbúi: „Úff! Þetta er rosalegt Viktor! En ég hef séð mann sem passar við þessa lýsingu nálægt blokkinni síðustu daga og virkaði einmitt eins og hann byggi ekki hér því hann fór aldrei neinstaðar inn.“