Mætti galvösk með fyrstu kökurnar

Fyrsti keppandinn í kökukeppni Kötlu og Hringbrautar mætti galvaskur inn á sjónvarpsstöðina í morgun með smákökur í farteski sínu, en þar á ferðinni Snædís Rán Hjartardóttir. 

Snærdís Rán lætur fötlun sína ekki hindra sig í þátttöku í þessari keppni, en hún er bæði daufblind og bundin hjólastól. Hún hefur á undanliðnum misserum vakið mikla athygli fyrir mannréttindabaráttu sína og verið ötull málsvari þeirra sem vilja að fatlaðir njóti sömu réttinda og ófatlaðir.

Kökukeppni Hringbrautar og Kötlu er í fullum gangi - og enn er tími til stefnu að skila inn kökum, eða allt til hádegis á morgun, föstudaginn 20. nóvember - og er fjöldi glæsilegra vinninga í boði, þar á meðal forláta Kenwood hrærivél að andvirði 90 þúsunda króna frá heimilistækjum, gisting og kvölverður fyrir tvo á Hótel Grímsborgum og gjafabréf fyrir tvo á tónleika Sætabrauðsdrengjanna, að ógleymdri glæsilegri gjafakörfu frá Kötlu.

Gestum og gangandi gefst svo tækifæri til að smakka á kökunum í Kringlunni síðdegis á morgun, á milli klukkan 16:00 til 19:00, en þar gefur Katla líka krökkum tækifæri til að lita og skreyta sínar eigin piparkökur.