Gunnar Bragi Sveinsson atvinnuvegaráðherra verður meðal gesta Sigurjóns M. Egilssonar á sunnudagsmorguninn.
Samtal þeirra verður í byrjun þáttar, það er laust eftir klukkan tíu. Gunnar Bragi svarar þar spurningum um veiðigjöld, búvörulög, beit, strandveiðar, hvort rétt sé staðið að greiðslum úr ríkissjóði til landbúnaðarins og öðru því sem brýnt er að spyrja um.
Þá munu málefni Framsóknarflokksins verða rædd. Er forystuvandi í flokknum? Verða hörð innanflokksátök um þau fáu þingsæti sem skoðanakannanir segja að flokkurinn muni fá í komandi kosningum.
Að venju verður þátturinn sendur út í beinni útsendingu í sjónvarpi og útvarpi Hringbrautar, fm 89,1.