Mætir ekki fyrir þingnefnd

Hanna Birna Kristjánsdóttir fyrrvarendi innanríkisráðherra hefur tilkynnt Ögmundi Jónassyni formanni stjórnskipunar- og eftirslitsnefndar að hún muni ekki mæta á fund nefndarinnar, eins og vilji nefndarinnar hefur ítrekað staðið til. Hanna Birna sendi Ögmundi bréf þessa efnis í dag, en þar segir hún að hún komi ekki aftur til þingstarfa fyrr en eftir miðjan apríl, en hún hefur sem kunnugt er verið í leyfi frá þingstörfum. Hún ítrekar í bréfinu að allan þann tíma sem lekamálið stóð yfir hafi hún leitast eftir að svara spurningum í samræmi við bestu vitneskju á hverjum tíma.


Hanna Birna kom fyrir nefndina í desember 2013 vegna málsins. Að mati nefndarmanna hefur hún frá þeim tíma haft uppi margvíslegar fullyrðingar sem hafa reynst mótsagnakenndar eða ekki staðist skoðun. Í ljósi þessa sendi Ögmundur Hönnu Birnu bréf síðla janúar á þessu ári þar sem óskað var eftir að hún mætti á fund nefndarinnar. Þeirri beiðni svaraði Hanna Birna ekki og ítrekaði Ögmundur því beiðnina 12. mars síðastliðinn og liggur nú svarið fyrir sem fyrr segir.