Trausti Valsson skipulagsfræðingur telur að í skipulagsmálum höfuðborgarsvæðisins sé of mikil áhersla á þéttingu byggðar, rétt sé að bjóða upp á þann valkost að búa miðsvæðis en huga þurfi að fleiru eins og til dæmis fallegustu byggingarlöndunum. Hann nefnir til að mynda Viðey og Gálgagahraun i Garðabæ í því sambandi. Trausti veltir upp þessum hugmyndum og mörgum fleirum í stórfróðlegu spjalli við Björn Jón Bragason í betri stofunni í þættinum 21 á Hringbraut í kvöld, miðvikudagskvöld.
Hér má sjá meira af skipulagshugmyndum Trausta, á heimasíðu hans.