Mæla eindregið með greiðslumati

Eitt það mikilvægasta í fasteignakaupum fólks er að það fari í greiðslumat áður en hugað er að sjálfum kaupunum, sögðu fasteignasalarnir Ásdís Valsdóttir og Guðrún Antonsdóttir sem voru gestir þáttarins Afsals á Hringbraut í gærkvöld.

Í þættinum, sem hægt er að nálgast á hringbraut.is er ljósi varpað á allt sem lítur að fasteignum og fasteignakaupum og eru ætlaðir að vera húseigendum og þeim sem eru að huga að sinni fyrstu eign til upplýsingar og ráðlegginga. 

Ásdís og Guðrún segja algengt að fólk sé að skoða eignir sem það hefur síðan ekki ráð á að kaupa, en mjög algengt er að kauptilboð séu gerð með fyrirvara um fjármögnun. Kaupferlið verði allt mun einfaldara ef fólk er búið að fara í greiðslumat áður en það gerir tilboð í eignir.

Þá segist Ásdís eindregið mæla með því að fólk láti gera ástandsskoðun á eldri eignum. Slík skoðun kosti reyndar smá útgjöld, en þau eru mun lægri en sá kostnaður sem getur komið upp, ef til dæmis skólp eða eitthvað annað reynist ónýtt þegar farið er í framkvæmdir.