Maður í annarlegu ástandi var handtekinn fyrir utan Rússneska sendiráðinu við Túngötu í Reykjavík dag.
Maðurinn var járnaður á höndum og fótum og þurfti þrjá lögreglumenn til að halda á honum út úr sendiráðinu.
Ekki var vitað hvað manninum gekk til áður en lögreglan var kölluð út.
Utanríkisráðuneytið staðfestir að Rússneska sendiráðið hafi óskað eftir hjálp lögreglu vegna mannsins.
Maðurinn hefur ekki viljað fara sjálfviljugur og héldu þrír lögreglumenn á manninum. Hann var lagður á magann fyrir utan lögreglubílinn áður en haldið var á honum inn í bílinn.
Fréttablaðið birti myndband af handtökunni í kvöld.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins tengist maðurinn brunanum sem átti sér stað á horni Vesturgötu og Bræðraborgarstígs í dag.
Rússneska sendiráðið vill ekki tjá sig um málið.