Maðurinn sem páll segir vera föður sinn ræðir við dv – „ég læt ekki einhvern ókunnugan mann heimta úr mér lífsýni“

Maður sem neitar að láta af hendi lífsýni til að afsanna að hann sé faðir Páls Andrésar Lárussonar segir einfalda stærðfræði leiða í ljós að hann geti ekki verið faðir Páls. Hann hafi verið við nám í Danmörku þegar Páll var getinn. Maðurinn veitti DV viðtal í dag undir nafnleynd. Hann segir útilokað að hann geti verið faðir Páls og skýrir ástæður sína fyrir því að neita samvinnu í málinu.

Ítarlegt viðtal er að finna við manninn á dv.is, sjá hér.

Áhugaverð grein birtist í Mannlífi fyrir helgi þar sem Páll Andrés Lárusson, 51 árs rafvirki, steig fram og lýsti baráttu sinni fyrir því að fá staðfestingu á uppruna sínum. Páll segist lengi hafa talið að maðurinn sem hann er kenndur við, Lárus, væri ekki líffræðilegur faðir hans. Fyrir um áratug fékk hann síðan Lárus til að gefa lífsýni og DNA-próf útilokaði að Lárus væri faðir hans.

Páll segist hafa gengið á móður sína eftir upplýsingum, en hún er núna látin. Móðir hans játaði fyrir honum að hafa átt í nánum kynnum við annan mann á því tímabili sem hann var getinn. Þann mann telur Páll vera föður sinn og hefur beðið hann um að láta í té lífsýni svo hægt sé að skera úr um faðernið með DNA-prófi. Þessu neitar maðurinn. Páll stefndi honum fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og krafðist lífsýnis. Krafan var gerð á grundvelli 15 gr. Barnalaga.

Maðurinn telur forsendur úrskurðar héraðsdóms, um að hann eigi að láta í té lífsýni, vera snargalnar. „Dómarinn kemst að þeirri niðurstöðu að þar sem ég hafi átt í kynnum við þessa konu um páskana þá séu líkur til að ég hafi hitt hana líka um haustið. Þetta kalla ég svona „ef og sko og kannski“ úrskurð. En ég hitti þessa konu bara alls ekki um haustið. Þá var ég í Danmörku að taka fjórða árið í tækniskólanum þaðan sem ég útskrifaðist sem byggingarfræðingur. Ég lagði fram gögn fyrir dómi, þar á meðal einkunnir út skólanum, sem sýna að ég var í Danmörku en ekki á Íslandi þegar drengurinn kom undir.“

Maðurinn segist aldrei hafa hitt móður Páls aftur eftir nóttina ljúfu á Hótel Loftleiðum um páskana. „Við vorum ekkert í sambandi. Ég hafði ekki einu sinni símanúmerið hennar.“

Ítarlegt viðtal er að finna við manninn á dv.is, sjá hér.