Klukkan 17:20 barst lögreglu tilkynning um að veiðimaður hefði fallið í Úlfljótsvatn, við hólma neðan Steingrímsstöðvar. Fjölmennt björgunarlið var sent á vettvang og var viðkomandi fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á bráðamóttöku Landspítalans.
Maðurinn var bandarískur ferðamaður og á áttræðisaldri. Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi segir:
„Slysið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild Lögreglunnar á Suðurlandi og ekki að vænta frekari upplýsinga um það meðan sú rannsókn stendur.“