„maður velur ekki sjúkdóminn sinn\"

„Ég elska son minn en hata fíkilinn“, segir Guðlaug Björk Baldursdóttir sem er móðir langveiks fíkils. Hún segir nær engin úrræði hafa í gegnum tíðina hafa verið fyrir son sinn. Hún sem móðir hans sjá alfarið um hann þótt hann sé alvarlega veikur líkt og aðrir sjúklingar, bendir hún á. „Maður velur ekki sjúkdóm sinn“, segir hún og tekur sem dæmi að hún hafi farið með krabbameinsveikan föður sinn á spítala og þar hafi hans veikindum verið sinnt. Þegar sprautusjúklingar líkt og sonur hennar, sem er tæplega 35 ára, eiga í hlut séu úrræðin fá eða engin.

Sonur Guðlaugar hefur farið mjög oft á Vog í afeitrun en nýverið var henni bent á að hún þurfi sjálf að sjá um þessi máli. Sonur hennar bað hana, móður sína um að „afeitra“ sig heima við sem hefur falið í sér ógnvænlegar stundir. Hún segir frá þessu á Þjóðbraut og að Hlaðgerðarkot hafi nú tekið við syni hennar og hún voni það besta. 

 

Guðlaug birti fyrst grein í Kvennablaðinu þar sem hún sagði frá stöðu sinni og úrræðaleysinu.