Stefanía Óskarsdóttir, dósent í stjórnmálafræðideild við Háskóla Ísland gerir upp síðasta vetur á Alþingi í samtali við DV. Segir Stefanía að stjórnarandstaðan sé í basli vegna tæps meirihluta ríkisstjórnarinnar. Stefanía segir:
„Það liggur í hlutarins eðli að ríkisstjórn með tæpan meirihluta og sem nær yfir hægri til vinstri, að það byggir allt á málamiðlunum og slík ríkisstjórn er ekki líkleg til að hrinda í framkvæmd mjög umdeildum stefnumálum. Stjórnarandstaðan verður þá bitlausari. Stjórnarandstaðan er í basli með að finna sína fjöl, fyrir utan Miðflokkinn í þessu orkupakkamáli, enda hefur ekki verið fljúgandi sigling á stjórnarandstöðuflokkunum í skoðanakönnunum. Það er ekki gefið að stjórnarandstöðunni gefist mikið færi á að ná flugi.“
Segir Stefanía að Miðflokkurinn hafi verið einbeittur í stjórnarandstöðu vegna orkupakkans.
„Á móti kemur að flokkurinn var í miklum fókus fyrir jól í Klausturmálinu. Þá héldu sumir að þessi flokkur væri búinn að vera, en það mál hefur fallið í skuggann á þessari hörðu stjórnarandstöðu sem hefur verið haldið uppi í þinginu.“
Þá er Stefanía beðin um að spá í spilin fyrir næsta vetur. Um það segir hún:
„Það er ágætt að fá tímabil þar sem allt er ekki í brjálæðislegum látum. Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi þannig að maður veit aldrei hvenær allt verður brjálað. Ég er ekki örugg með stöðugleikann, sérstaklega ekki í ljósi þess hvernig pólitíkin hefur verið síðustu tíu árin. En það er ákveðin ró um mál sem mér persónulega líkar.“