Maður með þokulúður reyndi að komast inn á alþingi – sjáðu myndbandið

Andstæðingar þriðja orkupakkans hafa mótmælt fyrir utan Alþingi frá því í morgun. Atkvæðagreiðsla vegna þriðja orkupakkans fór fram í morgun og var hann samþykktur. Í morgun var einn mótmælenda áberandi þar sem hann var mættur með þokulúður og notaði hann óspart.

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá þegar hann notast við þokulúðurinn eftir að þriðji orkupakkinn var samþykktur. 

Blaðamaður Hringbrautar var á staðnum og sá manninn reyna að komast inn á Alþingi með þokulúðurinn. Hann hafði þó ekki erindi sem erfiði og var lögregla kölluð til.

\"\"

\"\"